Margrét Guðmundsdóttir
Stjórnarformaður
Margrét Guðmundsdóttir, f. 1954, starfaði sem forstjóri Icepharma hf. 2006-2016. Hún hóf störf hjá Austurbakka hf. 2005 en fyrirtækið sameinaðist Icepharma og Ísmed 2006 undir nafni Icepharma hf. Áður starfaði Margrét sem framkvæmdastjóri hjá Skeljungi 1995-2005, framkvæmdastjóri hjá Kuwait Petroleum (Danmark)A/S 1986-1995 og skrifstofustjóri hjá Dansk ESSO, síðar Statoil, 1982-1986. Hún var aðstoðarframkvæmdastjóri AIESEC International í Brussel 1978-1979. Margrét situr í stjórn Eignarhaldsfélagsins Lyngs ehf., Lyfjaþjónustunnar ehf., Heklu hf., Reiknistofu bankanna, ISAVIA ohf. og Paradísar ehf. Margrét var formaður European Surgical Trade Association 2011-2013 og sat í stjórn félagsins frá 2009-2015. Hún var formaður Félags atvinnurekenda 2009-2013, sat í stjórn Reiknistofu bankanna 2010-2011 og stjórn SPRON 2008-2009.
Margrét hefur einnig setið í stjórn eftirtaldra fyrirtækja: Skýrr hf., Frigg hf., Q8 A/S í Danmörku og Dansk Institut for Personalerådgivning. Margrét er með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands, Cand. oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, Cand. merc. próf frá Copenhagen Business School og Executive menntun frá CEDEP/Insead í Frakklandi. Margrét hóf stjórnarstörf hjá N1 árið 2011 og hefur verið formaður frá 2012.
Magnús Magnússon
Varaformaður
Helgi Magnússon, f. 1949, starfar sem framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélags Hörpu ehf. Hann var áður framkvæmdastjóri Málningarverksmiðjunnar Hörpu og Hörpu-Sjafnar. Hann var ritstjóri Frjálsrar verslunar og rak eigin endurskoðunarfyrirtæki. Helgi er stjórnarformaður Bláa Lónsins hf. og Húsasmiðjunnar og á sæti í stjórn Marels hf. og Hofgarða ehf. Helgi sat í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins 2006-2013. Hann var formaður Samtaka iðnaðarins 2006-2012, átti sæti í stjórn Íslandsbanka hf. 1997-2005 og hefur m.a. setið í stjórnum eftirtalinna félaga: Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Verslunarráð Íslands, Stúdentaráð, Knattspyrnudeild Vals, Valsmenn hf., Harpa hf., Harpa-Sjöfn hf., Flügger ehf., Íslenskur markaður hf., Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf., Þróunarfélag Íslands hf., Lífeyrissjóðurinn Framsýn, Íslenski lífeyrissjóðurinn, Landssamtök lífeyrissjóða og Átak til atvinnusköpunar. Helgi er með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands, Cand. oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og er löggiltur endurskoðandi. Helgi hóf stjórnarstörf hjá N1 árið 2012.
Kristín Guðmundsdóttir
Kristín er fædd 1953 og starfar sem framkvæmdastjóri KG slf. Árið 2011 gegndi hún starfi forstjóra Skipta hf. en þar á undan var Kristín fjármálastjóri Símans hf. og Skipta hf. 2003-2010 og fjármálastjóri Granda hf. 1994-2002.
Kristín starfaði einnig til fjölda ára sem forstöðumaður hjá Íslandsbanka og Iðnaðarbanka Íslands. Kristín er í stjórn Kviku banka frá 2018, hún var varaformaður í stjórn Straums fjárfestingarbanka frá 2013-2015, í stjórn Kviku banka 2015-2016 og í varastjórn Kviku banka frá 2016-2017. Hún er einnig í stjórn Farice frá 2013 og í stjórn RVK-Studios frá 2015.
Kristín var stjórnarformaður Sparisjóðs Vestmannaeyja 2011-2013 og sat í stjórn Mílu ehf. 2007-2011 en þar sinnti hún starfi stjórnarformanns árið 2011. Kristín sat í stjórn Símans hf. 2007-2011 og var stjórnarformaður árið 2011. Hún er í fjárfestingarráði Eyris sprota frá 2015. Kristín situr í stjórn Golfsambands Íslands. Kristín hefur m.a. setið í stjórnum eftirfarandi fyrirtækja: Skjá miðlar ehf., Fasteignafélagið Jörfi ehf., Sjóminjasafnið, Farsímagreiðslur ehf., Straumur hf., Verslunarráð Íslands, Verðbréfaskráningar Íslands hf. og Lífeyrissjóður verkstjóra. Kristín er með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands og Cand. oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Kristín hóf stjórnarstörf hjá N1 2011.
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson er fæddur árið 1978 og starfar í dag sem framkvæmdastjóri Helgafells ehf. og Straumness ráðgjafar ehf. Hann starfaði hjá GAMMA á árunum 2012-2016 og hjá Stoðum frá árinu 2005-2010, þar af sem forstjóri félagsins frá 2007-2010.
Áður var Jón starfsmaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans á árunum 2003-2005 og starfsmaður fyrirtækjaráðgjafar Búnaðarbankans árin 2002-2003.
Jón situr í stjórn Refresco Group B.V., Stoða hf. og Gámaþjónustunnar hf. Áður sat Jón í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar, Fjarðalax hf., Icelandair Group, Glitnis banka og Hitaveitu Suðurnesja. Hann er með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands og B.Sc. próf í viðskiptafræðum frá Háskólanum í Reykjavík. Jón hóf stjórnunarstörf hjá N1 árið 2014.
Þórarinn V. Þórarinsson
Þórarinn V. Þórarinsson er fæddur 1954 og er starfandi lögmaður á eigin lögmannsstofu, Advocatus slf. Þórarinn var lögfræðingur hjá Vinnuveitendasambandi Íslands frá 1980, aðstoðarframkvæmdastjóri sambandsins frá 1983 og framkvæmdastjóri 1986 til 1999.
Hann var forstjóri Símans frá 1999-2001. Þórarinn er formaður stjórnar Reita fjasteignafélags hf. og stjórnar Líflands hf. og situr í stjórnum Nesbúeggja ehf., Grana ehf. og Forsa ehf. Hann hefur setið um lengri eða skemmri tíma í stjórnum margra félaga, skráðra og óskráðra, bæði í þjónustustarfsemi og framleiðslu.
Þórarinn er með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík og er Cand.jur. í lögfræði frá Háskóla Íslands 1980. Hann öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður 1986 og hæstaréttarlögmaður 2010.